-=*{~Katrín Sif Árnadóttir~}*=-

-=*{~Katrín Sif Árnadóttir~}*=-

28.09.2008 22:12:15 / kata

Já einmitt!

Var búin að skrifa þvílíka færslu í explorernum og það vistaðist ekki inn frekar en fyrri daginn :$ ætla að prófa Mozilla og stikla því bara á stóru :)

September fer senn að ljúka, það verður nú bara gott...frekar slappur mánuður að mínu mati. Haustlaufin um allt láta víkina annars fögru líta út fyrir að vera skítuga hmm kannski er ég ein um að finnast það EN mamma mín sagði mér alltaf að segja það sem mér finnst :)

Göngurnar búnar og JEMINN, án efa þær erfiðustu hingað til 8| Kolla frænka kom með og hún var orðin rauðflekkótt áður en við komum upp að fjallgirðingu bwahahahahaha ræfillinn vissi nottlega ekkert út í hvað hún var að fara :lol: vorum ekki komin niður að rétt fyrr en um klukkan 16.00 eftir að hafa misst einar 50-60 rollur öss öss öss var svo ónýt eftir þetta :d

Nú eru flutningar á allra næst dögum, Hólatún 6 verður það enda abúendur með eindemum sexy haha smá galsi híhíhí :) leggst svona líka vel í okkur, Manuel er m.a.s. búinn að pakka sínu dóti á meðan móðirin safnar á rúmgaflinn *ehemm roðn*

Enn ein helgin liðin og framundan leikskólafundir á Akureyri og svo þarf víst að venja yndislega soninn við á nýjum leikskóla...Hann með sitt stóra hjarta eða hitt þó á nú alveg örugglega ekki eftir að sleppa mömmunni úr augsýn fyrstu vikuna.

Nú svo erum við með matarklúbbinn núna í október og innflutningspartý og svo eiga Frikkinn minn og Bryndísin afmæli á lau og Jói gingu á sun svo manni ætti nú ekki að leiðast :)

Frikki er með tónleika í Ólafsfjarðarkirkju á fimkv og Dalvíkurkirkju á föskvöldið og ég vil meina að það sé best að mæta tímanlega því síðast fékk fólk sem mætti klukkutíma fyrir show ekki sæti 8|

Jæja, þetta er orðið gott í bili held ég :) elskiði friðinn og strúkiði kviðinn sykurpúðarnir mínir 8)

*og hey, reynið að commenta, 75 búnir að skoða í dag og ekkert comment*


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 20:22:14 / kata

Mamma mia!

Vááá, upplifði geggjað laukvöld um liðna helgi...fórum í bíó ég, Hildur mágkona, Badda og Hugga, Kata og Íris, Magga Lax, Bogga, Linda og Kristján, Anna Stella og Valdís og Lilja Bára...fórum á mamma mía og OMG hvað það var gaman...nú þrái ég að komast á þessa grísku eyju og njóta mín sem aldrei fyrr :) þetta var svona sing along sýning, Badda og Hildur sátu sitt hvoru megin við mig og sungu ALLANN tímann hahaha meiriháttar! Adam fór á e-a x files mynd frekar hahahahahaha þvílíkur missir fyrir hann. Svo komum við allar syngjandi út úr bíóinu og hann gegt alvörugefinn hahaha.
Mættum svo allar á Bárubúð og sungum og dönsuðum við ABBA langt fram á nótt :) drakk kannski aaaaðeins of mikið EN er að verða góð hehe :) Geggjað kvöld sem ég mun aldrei gleyma, takk æðislega allir sem eyddu því með mér :) þurfti svo á þessu að halda :)

Annars er nú lítið annað að frétta, fór út í fjörð í dag og hékk með Kidda og Einari..það var fínt, lætur tímann líða hraðar, veit ekkert hvað ég á að gera af mér eftir að guttinn byrjaði aftur á leikskólanum...vantar ekki verkefnin, kem mér bara ekki í þau :)

Jæja, flutningar framundan og vonandi góðir tímar :)

 

» 10 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 22:59:48 / kata

Beilerinn ég!

Jáhh, ég klúðraði heldur betur verslunarmannahelginni eins og svo oft áður :$ fór nú samt í bæinn á laukvöldinu, pantaði pizzu handa úgglendingunum og svo heim aftur hehe :) sunkvöldið byrjaði svo á mat í keiluhöllinni, ræðum það ekkert nánar og svo fórum við Manuel, ma og pa, Júlía og Stebbi í keilu iog SHIT hvað ég var góð 8| náði hverri fellunni á fætur annarri öss öss öss...Manuel var líka rosa góður en Júlía toppaði þó allt!!! Hún þrumaði keilukúlunni aftur á bak svo fólkið í kringum okkur átti fótum sínum fjör að launa bwaaaahahahahahahaha úff hvað ég hló mikið hahahahha ekta hún :lol: Pabbi vann samt, enda sýndi hann snilldartakta sem ég hef ALDREI séð hjá gamla áður...vann mig með 2 stigum :$

Keyrðum svo að Greifanum og horfðum á flugeldasýninguna...með öðru auganu reyndar þar sem Júlíana Árna bróður og Hildar kom í bílinn til okkar og ég var aðallega passa að þau yrðu ekki hrædd...Svo fór ég bara heim!!!!!! Já, var komin heim rétt upp úr miðnætti, og ég sem ætlaði á feitt djamm í Sjallanum, Eurobandið að spila En nei, svona er að vera ástfangin :haha: aumingja Svava bjóst við þvílíku djammi híhíhí...það verður bara núna um helgina gæskan :)

Nú er allt komið á fullt fyrir Fiskidaginn og hellingur af liði komið í bæinn okkar...fólk í óða önn að skreyta og fegra híbýli sín á meðan ég vinn við að servera þessu liði mat hehehe er samt komin í frí núna fram á laudag vúhú :) ætla að reyna að njóta helgarinnar með syni mínum :)

Klipping og litun með Sússu minni á morgun hjá Hildi mágkonu og ætli maður versli sér ekki e-ð smá af fötum í leiðinni *ehemm* er að missa mig þessa dagana 8|

En ég enda bara á kærleikskveðju í tilefni helgarinnar og vona að þið njótið alls í kringum þessa blessuðu helgi...mér persónulega finnst þetta nú orðið einum of þegar maður fær ekki 1x að sofa á sínu eigin heimili fyrir gestagangi muahahahahaha :)

Kate býður góða helgi 8)

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 23:15:09 / kata

Þvinnka!

Fyrirsögnin er til heiðurs Bryndísi sem "tekur við" af stakri snilld prrraaaaahahahaha :)

Kollan mín hélt upp á fjórðungsaldarafmælið sitt í gærkvöldi með rosa partý og öllu tilheyrandi :) fullt af mat og endalaust áfengi...iiiicccckkkk.... :)

Katan mætti að sjálfsögðu með gítar og Einar Arngríms hélt uppi rrruuuuusalegri stemmingu :) lenti óvart í símanum og missti af helmingnum af "fjöldasöngnum" öllum til mikillar gleði híhíhí :)

Röltum svo á barinn og tókum úgglendingana með okkur (staffið af hótelinu) :) Barinn var troðinn af fólki þegar við mættum eða hitt þó *hóst hóst* það var enginn nema dj Siggi og Gunni á barnum hehehehe en það rættist heldur betur úr þessu þegar hönkarnir úr fótboltanum mættu :lol:

Ég held ég hafi nú samt bara farið snemma heim...alla vega áður en það lokaði...spjallaði við félaga minn alla leiðina heim og til að ganga sjö í morgun held ég hahaha fór þá fram í stofu að breiða yfir Snorrann minn (með svefngalsa dauðans) læddist geðveikt, rak mig í stofuborðið og það komu þvííku lætin bwahahahahahaha aumingja Snorri hentist upp hahahahaha 8|

Vaknaði í morgun öll í marblettum, með bitfar á hálsinum, óbragð í munninum og þvinnku dauðans hehehe nejj kannski full ýkt með óbragðið hahahahahaha...höstlaði samt bönz, er það ekki stelpur??? Bwahahahahahahahahaha daufa :)

Jæja, ætla í pottinn og fá mér öl :)

Chao

» 21 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 15:23:51 / kata

Smá tími aflögu!

Já, Manuel er hjá vini sínum og ég hef pínu tíma til að blogga :)

Allt flott og fínt að frétta af okkur mæðginum :) Júlía systir er ólétt og við erum búnar að vera í spassakasti undanfarna daga...máluðum okkur og Manuel sem ketti og fórum í Úrval að versla í matinn hehehe svo þegar fólk spurði afhverju við værum svona málaðar sögðumst við hafa verið að koma af fundi hjá kattavinafélaginu bwaaahahaha bara fyndið að heyra Manuel segja það :) svo í gær sungum við karaokeeið í örugglega 3 tíma, óperur, jólalög og fleira í þeim dúr og grétum úr hlátri...aumingja fólkið sem átti leið um sunnubrautina í gær hehehe :)

Annars er sumarið búið að líða allt of hratt, nú er bara svona haustfílingur í gangi..alltaf rigning og nice :-s

Við Kolla erum að fara að skoða íbúð í Hrísalundinum og ég vona að okkur lítist vel á hana...get ekki beðið eftir að skipta um umhverfi og byrja upp á nýtt :) alveg kominn tími á að ná sér í kall bara og byrja á nýjum kafla...þetta er orðin ágæt pása hehehe :)

Ég átti afmæli um daginn og þetta var einn af verri dögunum...get ekki sagt að hann hafi verið góður EN það sem ekki drepur mann styrkir mann heyrði ég einhvers staðar :) ætla að grilla og svona í sveitinni eins og í fyrra...hef bara ekki komið mér í það ennþá hehehe :)

Ein góð setning frá henni Gingu minni hérna í restina;
If he'll do it with u, he'll do it 2 u!!! Gott að hafa þetta á bakvið eyrað elskurnar :)

Ekkert meira í bili held ég :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 16:58:23 / kata

Allt gott takk, þú?!?

Nenni ekki að blogga í sumar, svo ég skrifa sennilega ekkert fyrr en í haust þegar ég er flutt í bæinn :)
Njótið sumarsins elskurnar :)

» 17 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 22:53:08 / kata

Geðshræring!

Ég er komin á yfirsnúning eftir daginn :)

Dagurinn byrjaði eins og venjulega með að koma guttanum á leikskólann og fara í ræktoz. Skrapp svo niður í Húsasmiðju og keypti 20 stk íslenska fánann til að skreyta með fyrir eurovisionið í kvöld. Datt síðan í hug að kíkja á Guðmund Inga í Fjölrita og viti menn...fékk hann til að selja mér 11 riiiiisa stór karton og nokkur lítil. Sat síðan sveitt á gólfinu hérna í sunnubrautinni til 13.23 (hehehehe átti að mæta í vinnu 13.30) og gerði alls konar skilti :) Sum hengdum við utan á húsið en önnur tók ég með í skrúðgönguna og í íþróttahúsið :) Hélt að allir myndu mæta með e-ð EN það mætti enginn með skilti svo mínum var stillt upp á víð og dreif fyrir myndatökur hehehehe :)

Spennan var svo í hámarki í íþróttasalnum og mín farin að nötra fyrir hönd síns "heittelskaða" þegar síminn minn hringir...Friðrik á línunni alveg salírólegur bara að heyra í mér hljóðið hehehehe salurinn gjörsamlega trylltist svo hann fékk stemminguna beint í æð rétt áður en hann gekk inn á sviðið :)

Heyrði svo í honum blessuðum eftir þeirra atriði og hann var rosa ánægður EN þegar hann hringdi áðan (eftir að úrslitin voru kunn) þá öskraði hann bara hehehehehehe :) ÞVÍLÍK GLEÐI!!!

Nú er sem sagt brjálað drekkelsi á laugardagskvöldið næsta og þeir sem djamma hér með okkur VERÐA að mæta í svörtu og bleiku híhíhíhí :)

Svo er það bara víkurröstin beibí :) vona að ALLIR mæti :)

Fjúff ég tala/skrifa í hringi, er alveg búin á því :)

*Tók fullt af myndum en kann náttúrulega ekkert að setja þær inn hehe*

Og hey, skiltin mín voru víst sýnd í fréttunum hehehe bæði húsið okkar og skrúðgangan, daufa slaka :)

Farin að sofa í hausinn á mér hehehee
Svefngalsinn kveður í bili :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 16:13:30 / kata

Stolið af Júlla síðu :)

Hér er gróf dagskrá Eurovisionþorpsins, hún verður borin í öll hús í Dalvíkurbyggð ásamt getraunaseðli fyrir fimmtudagskvöldið.

Eurovision þorpið Dalvík - 10 ára afmæli Dalvíkurbyggðar
Dagskrá  - Tökum þátt, gleðjumst saman og styðjum okkar fólk

Við hvetjum alla til að.
Skreyta, setja stuðningskilti eða myndir út í glugga, flagga á fimmtudeginum.
Hægt er að nálgast blöðrur eftir hádegi á fimmtudag í verslunum og fl. stöðum.

Eurovision tilboð.
Húsasmiðjunni.
Íslenskur fáni á 99 kr meðan birgðir endast.
Olís.
Hamborgarafjölskyldutilboð með coke - 2 l coke og flögur - Ís úr vél og fleira.
Frír Candyflos í boði Olís við Olís milli kl 16 0g 18.
 Samkaup Úrval. ATH. Lokum 18.30 fimmtudaginn 22.mai
Góa Bitar Hraun /Æði 169.-  50% afsláttur af nammibar fimmtudag föstud og laugardag
Sprite/Sprite zero 99.-  Stjörnusnakk Papriku og Ostastjörnur 149.-  Ásamt mörgum öðrum tilboðum og nýi Eurobandsdiskurinn er kominn.

Fimmtudagur 22. maí. - Flaggað í byggðarlaginu
16.00 Candyflos í boði Olís -
Eurovisionþorps og 10 ára afmælisblöðrum dreift.
18.00 Fjölskylduskrúðganga frá Ráðhúsi að íþróttahúsi. - Listamenn Díónýsíu taka þátt. Mætum með fána , veifur, hatta og skraut. Skrúðgangan verður tekin upp.
19.00 Keppnin á skjá í íþróttahúsinu- heppnir fá diska Eurobandsins og árituð veggpsjöld
Pizzur til sölu á staðnum - Getraunir -  
Videoblogg frá Friðrik Ómari sýnt.
Þetta kvöld er í boði
Félagsmiðstöðvar, Stuðningshóps og Sparisjóðs Svarfdæla

Föstudagur
23. maí
23.30
Upphitunarkvöld á Bakaríinu - DJ Hulio með nýju og gömlu Eurovision lögin.

Laugardagur 24. maí - Flaggað.
11.00 - 14.00
Vorhátíð í Dalvíkurskóla - Allir velkomnir.
14.00 Dalvík/Reynir - Leiknir knattspyrnuleikur.
18.00 Eurovision gleði út um allan bæ - heimahúsum og sölum

19.00 Keppnin í Íþróttahúsinu á Risaskjá - Vímulaus fjölskylduskemmtun.
23.00 Eurovision dansleikur í Víkurröst  fram eftir nóttu - DJ Hulio

Sunnudagur 25. maí
Á Degi barnsins,  ætlum við að koma saman "austur á sandi",  með skóflur, fötur og form og byggja sandkastala og fleira. Leikir og sprell undir stjórn hins eina sanna Adda Sím.


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 20:18:22 / kata

Gleðilegt sumar!

Já einhverjir vilja meina að sumarið sé komið en aðrir eru nú ekki alveg á þeim buxunum, segja að hér sé spáð -2 og slyddu um helgina 8| Ég vil trúa því að sumarið sé komið 8)

Síðustu kóræfingunni var að ljúka, svo er bara "opin æfing" á þriðjudaginn næsta á milli 19.00 og 20.00 fyrir þá sem vilja kíkja og hlusta á þessi 9 lög sem við höfum verið að æfa síðan í janúar :) Júlía systir kom á æfingu áðan og átti ekki til orð...við erum rooosalegar :)

Ég er búin að vera hörkudugleg í ræktinni í 6 vikur núna og er ekkert á því að hætta :) finnst samt ömurlegt að sjá ENGAN mun eftir 6 vikur :$ ekki beint hvetjandi...

Nú svo náði klbindindið mitt þeim merka áfanga í fyrradag að verða hvorki meira né minna en 1 og 1/2 árs toppiði það:!: Það verður seint hehehe :haha: *vottar fyrir pínu stolti* hehehe sorglegt :) Hef ákveðið í tilefni þessa merka áfanga að taka á móti heillaóskum og skátaskeytum laugardaginn 17.05.08 á milli 16.00-18.00 :) kransar og skreytingar afþakkaðar en stöku rós vel þegin :)

Talandi um rósir; ég sá einhverja grein á netinu þar sem ungur strákur var að tala um hvað maður væri upptekinn af sjálfum sér og öllu því neikvæða í kringum mann. Hversu erfitt væri t.d. að hrósa fólki í hvert sinn sem maður sæi e-ð jákvætt í fari þess hins sama, já eða bara að knúsa sína nánustu!!! *ehemm* það hefur reynst mér erfitt hingað til svo í dag fór ég og keypti 10 rósir og gaf þeim sem eru mér kærastir (á Dalvík sko, nennti ekki á pósthúsið hehe). Viðbrögðin stóðu ekki á sér, knús og kossar, jafnvel tár :) mikið leið mér vel :)

Svona ætla ég að gera 1x í mánuði hér eftir :)

Katan kveður hamingjusamari en í þónokkurn tíma ;)



» 9 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 19:41:44 / kata

Sólin!

Ég elska sólina en einhverra hluta vegna elskar sólin son minn meira en mig hehehe :)
Við erum búin að njóta veðurblíðunnar undanfarna daga eins og flestir, förum í sund daglega og Manuel er orðinn svartur hehehe ;) ég er nú alveg orðin brún en það má nú milli vera hvort maður er pínu brúnn eða bara eins og maður sé skítugur eins og sonur minn :) :) :) mér finnst hann alltaf verða fallegri og fallegri svona þegar sólin fer að skína :) þá kemur litli spánverjinn minn í ljós 8)

Annars fékk ég gulan "09 miða á þrumuna mína :) þurfti samt að punga út eins og einum 10.000.-kalli í hann fyrst, láta sjóða e-ð púst saman og setja rúðuþurrkuarm á sem kostaði btw 5.900.- kall utan við ásetningu og svo bíður hann núna eftir smurningu þessi elska 8| endalaus útgjöld ha!

Annars er ég bara búin að njóta undanfarinna mánaða með syni mínum og nánustu fjölskyldu, hef lítið hitt af vinum en það fer að líða að vinatímum hehehe :)

Jæja, ætla að skella mér á nova.is og skoða nýja myndbandið við this is my life :)

Njótið veðursins öll sömul :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 15:13:56 / kata

Litla þruman mín!

Fór með kaggann minn í skoðun í gær og var alveg pottþétt á því að ég fengi skoðun, þar sem það er tiltölulega stutt síðan hann fékk 2008 miðann :$ en NEI, pústið er víst farið og því engin fallegur miði í þetta sinn, bara þessi asnalegi græni miði sem ég er orðin frekar þreytt á að fá :^) Það er alltaf e-ð :)

Annars er nú lítið að frétta af okkur hér í Sunnó :) Já, ég er búin að losa íbúðina mína og komin í sunnubrautina til mö og pa með allt mitt hafurtask hehehe :)

Vinnan mín fer nú alveg að klárast og ég á eftir að sakna litlu krílanna "minna" mikið :cry: þau eru svo yndisleg þessar litlu skonsur hehe :) klára bæði Krílakot og Brynjar Má á miðvikudaginn í næstu viku! Það verður skrítið!

Við Manuel Árni fórum á árshátíð Dalvíkurskóla í gær og skemmtum okkur konunglega :) mikið um söng og tónlist og voru flest atriðin alveg frábær :) Manuel vakti lukku áhorfenda með sömu spurningunni eftir öll atriðin; mamma, er þetta nokkuð búið? Kemur ekki meira hehehe litla dúllan :)

Darma kom svo og borðaði með okkur hammara og franskar eftir showið :)

Það er eitt sem ég hef verið að huxa Darma!!!

Ætli það sé tilviljun að þú heitir Fríða og franskar á spænsku papa fritas? T er sko sagt d á spænku...mér finnst þetta svolítið athyglisverð kenning hjá mér hmm ha?!? Veit þú ert að hlægja núna híhíhíhí :)

Svo er Sússan mín að koma heim eftir 5 daga og ég get varla beðið...jeeeeminn hvað ég hlakka til :)

Gleðilega páska elskurnar og verið dugleg að kvitta ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 12:38:19 / kata

Þvílík skömm!

Ætlaði mér að fara þennan venjulega blogghring sem ég fer ca 2x í viku í gær en áður en ég vissi af var ég komin í e-ð allt annað! Ég var komin á bloggsíður hjá m.a. frægum tónlistarmanni hér á landi og get ég ekki annað sagt en að ég skammist mín fyrir að hafa lesið þetta! Þvílíkur viðbjóður sem fólk getur dritað niður á síður sínar sem eru svo öllum opnar og hver sem er virðist geta commentað á þessar færslur!
Þetta fólk ætti að skammast sín!!! Þetta fólk þekkir Friðrik nákvæmlega ekki neitt að mér vitandi og ætti því alls ekki að skrifa svona lagað! Það er nú ekki oft sem mér blöskrar en ég get svo svarið það að mig langaði helst til að fara að gráta þvílíkt var ógeðið :( m.a.s á barnalandi var óhróður um manninn! Á þetta fólk ekkert líf??? Mér finnst þetta virkilega ósanngjarnt!
Vona að þið sem þekkjið hann blandið ykkur ekki í þessar umræður, við erum meira fólk en það! Óska þess bara innilega að þetta fari að líða hjá þetta eurovision rugl og vona að þetta blessaða fólk sem skrifar svona lagað fái þetta allt saman í hausinn aftur með eöm hætti!

Kata hætt!

» 12 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 18:59:38 / kata

Við rústuðum þessu!!!

Já, heldur betur :) ég hefði kannski aaaðeins mátt slaka á sviðunni hehehe vútsssss :) Eurobandið vann með rúmlega 30.000 stiga mun ;) ;) ;)

Vil þakka allan stuðninginn og fyrir öll smsin sem ég fékk í gærkvöldi :) kláraði inneignina mína í atkvæðin svo ég gat engum svarað :)

Takk takk :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 19:58:07 / kata

Þá fer að líða að þessu!!!!

Jæja krakkar, nú hreinlega mana ég ykkur til að kaupa ykkur fullt af inneign og kjósa Frikka og Regínu áfram á laukv næsta og þið líka sem ekki eruð eurovision aðdáendur því án atkvæðanna vinna þau ekki!!! Nú leggjumst við Norðlendingar saman á eitt og sendum þau út til Serbíu!
Eurobandið er þau einu sem eru með gott og grípandi lag og góða söngvara :) Plz kjósið og kjósið því hvert atkvæði skiptir gríðarlegu máli :)
Það er búið að breyta laginu töluvert frá síðasta þætti og kominn enskur texti við það, saminn af Páli Óskari og ef þið viljið hlusta á það þá farið á
www.myspace.com/fridriksings það er bara geeeeðveikt og gæti náð langt í Serbíu :)

Svo megið þið endilega vera dugleg við að hringja á Bylgjuna og Fm95,7 og biðja um "this is my life" :) :) :)

Vona að þið njótið laugardagskvöldsins jafn mikið og við ætlum að gera :) :)

Áfram Eurobandið :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 19:35:59 / kata

Alltaf eins þetta blessaða blog.central!!!



Jæja, ég ætla að reyna í 3. skiptið á þrem dögum að blogga...sjáum til hvort þetta kemur inn!

* Síðasta ár var ekki alveg mitt ár en hef ákveðið að þetta verður það.

* Var veik um áramótin og gerði ekki neitt, jú Sússan mín kom og spjallaði :)

* Ég eignaðist litla frænku 27.des :)

* Hún var skírð Júlíana á afmælinu hans Manuels 27.jan :)

* Litli fallegi drengurinn minn er orðinn 4.ára...jeminn!

* Ég er byrjuð í kvennakór og finnst það æði :)

* Er að SOS námskeiði um reiðistjórnun barna (í sambandi við vinnuna) og líkar mjög vel.

* Er búin að opna síðuna hans Manuels aftur...loksins...og er að downloada fullt af myndum :)

* Fékk geggjaða digital myndavél í jólagjöf frá mö og pa :)

* Er búin að segja upp íbúðinni minni.

* Ætla að búa hjá mömmu og pabba þar til ég er búin að safna mér smá pening :)

* Þá ætla ég að flytja í bæinn :)

*** Frikki og Regína eru að keppa í laugardagslögunum á laukv. næsta og ég vona að þið öll kjósið þau áfram...svo við getum stefnt á árlegu ferðina okkar suður 23.feb n.k. :)

Nóg í bili :)

Chao


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Ástin mín...
Hittingur í sumar :) :) :)